Frank mig her
Hvað finnst okkur um að einhver flytjist allt í einu inn á heimilið okkar? Hvernig breytist sambandið þegar við verðum allt í einu þrjú en ekki tvö? Hvernig eigum við að bregðast við og hvernig er hægt að sætta sig við ný sambönd á heimilinu? Bókin segir frá strák sem býr hjá pabba sínum og hvað honum finnst um að nýr kærasti pabba hans flytur inn á heimilið. Fyrst bregst hann illa við en smám saman kemur hann auga á kostina við að hafa fleiri en einn fullorðinn á heimilinu.
Sækja: